Nú er tækifæri fyrir stórgróssera landsins. Fyrir þá er þægilega vinveitt ríkisstjórn við völd. Ríkisstjórn sem mokar endalaust milljörðum upp á færibandið sem liggur að veskinu þeirra. Það er samt ekki nóg. Grósserarnir vilja meira.
Nú opinbera þeir græðgi sína og vilja til að skerða kjör alls almennings. Eru með ákall um launalækkanir. Bera fyrir sig hálfsannleik. Stórgrósserarnir í Borgartúni hafa beint samband við stjórnarráð Íslands. Það er sterk staða.
En móralskt út í samfélagið liggur grýttari braut. Grósserarnir úr Borgartúni skrölta í dag á Mogganum. Það er þreyttur fararskjóti. Ég er að verða 67 ára og er jafnvel með yngri lesendum Moggans. Mér virðist Mogginn vera einskonar tístudúkka grósseranna. Þau eru fá sem gera nokkuð með það sem ritstjórinn segir eða gerir. Nema kannski þegar hann stendur við kaffivélina í Hádegismóum og slær um sig með vafasömum fullyrðingum um fjarstatt fólk.
Jæja, nýjasta atlagan er gegn launafólki.
„Þar sem um 90% einstaklinga á vinnumarkaði eru í stéttarfélagi hér á landi, sem er hæsta hlutfall á heimsvísu, er ekki mikilla breytinga að vænta í kjaramálum til skemmri tíma nema sérstök sátt náist meðal aðila vinnumarkaðar um að bregðast við ástandinu – til að mynda með frystingu launahækkana eins og átti sér stað í kjölfar fjármálakreppunnar. Í löndum þar sem þátttaka í stéttarfélögum er mun minni en hér má sjá áhrif kórónuveirukreppunnar endurspeglast betur í rauntíma í mismunandi atvinnugreinum. Laun á markaði hér hafa ekki aðlagast aðstæðum,“ segir Anna Hrefna Ingimundardóttir úr Borgartúni í Mogga dagsins.
Hrein og klár stríðsyfirlýsing. Það er innan við ár í kosningar svo nú er um að gera að hafa hraðar hendur. Óvíst er að næsta ríkisstjórn verði eins hliðholl grósserum Íslands og sú sem nú situr.
Og tístudúkkan eltir: „Þetta er augljóst og allir nema þeir sem eru algerlega úr tengslum við raunveruleikann hljóta að taka undir þetta. Engu að síður reynir forysta verkalýðshreyfingarinnar enn að halda í þá afstöðu sína sem komið hefur íslensku atvinnulífi í þann vanda sem þessi launaþróun veldur. Og ekki nóg með það, hún hyggst halda fast við þá hækkun launa sem vofir yfir íslensku atvinnulífi um áramótin. Þann skell eru fyrirtæki landsins um þessar mundir að reikna inn í áætlanir næsta árs og mörg þeirra eiga engan annan kost en að bregðast við með enn frekari uppsögnum, sem er nöturleg staðreynd á þessum erfiðu tímum.“
Línan hefur verið dregin. Orustan er fram undan.
-sme