Fréttatilkynning: Strandveiðifélag Íslands, félag um réttlæti í sjávarútvegi heldur stofnfund í gamla Sjómannaskólanum við Öldugötu 23, Reykjavík, laugardaginn 5.mars kl. 14.
Tilgangur með stofnun félagsins er að standa vörð um og berjast fyrir rétti almennings til handfæraveiða við Íslandsstrendur og koma í veg fyrir mismunun í lögum um fiskveiðistjórnun sem brýtur í bága við stjórnarskrá landsins sem er staðfest alþjóðlega og innanlands.
Félagið vísar í álit mannréttindanefndar Sameinuðu Þjóðanna frá því í október 2007 þar sem koma fram að íslensku lögin um stjórn fiskveiða brjóti í bága við 26. gr. Alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi um jafnrétti allra manna.
Við vísum einnig í niðurstöðu Hæstaréttar frá árinu 1998 að fiskveiðistjórnarkerfið eins og það er uppbyggt væri andstætt jafnréttisákvæðum stjórnarskrárinnar og ákvæðum um atvinnufrelsi.
Tilgangi sínum hyggst félagið ná með öllum mögulegum leiðum, jafnvel á málssókn gegn íslenska ríkinu og stjórnsýsluákærum gegn handhöfum löggjafar- og framkvæmdavalds sem samþykkja mismunun í sjávarútvegi, þrengja um of að strandveiðum, virða að vettugi kvótaþak í samræmi við núverandi lög um fiskveiðistjórnun, óvirða stjórnarskrá lýðveldisins o.fl. brot á íslenskum og alþjóðlegum samþykktum og lögum.
Félagið hyggur á liðsinni alþjóðlega stofnana og félaga sem berjast fyrir sömu markmiðum á alþjóðavísu en mikil vakning hefur orðið á undanförnum árum fyrir umhverfisvænum strandveiðum, óæskilegum áhrifum samþjöppunar í sjávarútvegi á sjávarbyggðir og mikilvægi þess að vernda hafsbotninn á landgrunni.
Fjölmiðlar eru velkomnir á fundinn.
Frekari upplýsingar má nálgast hjá Álfheiði Eymarsdóttur úr undirbúningsnefnd, alfa@this.is eða í síma 7734944.