Greinar

Stöðugleiki og tækifæri Bjarna Ben

By Aðsendar greinar

October 14, 2024

Sigurjón Þórðarson, varaþingmaður Flokks fólksins, skrifar:

Stjórnmál Það er ekki mikil eftirsjá í þessari ríkisstjórn sem nú er að fara frá völdum fyrir íslenskan almenning.  Öðru máli gegnir um launaðan her aðstoðarmanna, almannatengla, auglýsingastofur og nefndir „sérfræðinga“ sem hafa getið af sér gagnslausar afurðir á borð við söluráðgjöfina dæmalausu á Íslandsbanka, svikaleikrit Svandísar Svavars „Auðlindin okkar“ og Hvassahraunsskýrslu Sigurðar Inga.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið með lykilinn að efnahags- og útlendingamálum og skilar nú af sér eftirfarandi „árangri“:

Ekki ætla ég að fjölyrða um afrek Framsóknar en þau þekkja landsmennum af hrakandi lesskilningi, heilbrigðiskerfinu og versta vegakerfi í Evrópu. Helsta framlag Vg eru jú kynlausu klósetin sem Guðlaugur Þór vinnur nú samviskusamlega við að byggja upp.

Flokkur fólksins mun bjóða kjósendum upp á breytta stefnu þar sem hætt verði bruðli og tekið mið að hag almennings en ekki fámennrar hirðar í kringum stjórnmálaelítuna.