Gunnar Smári skrifar:
Ég sskrifaði í gær um lækkun krónunnar og varð var við það í kjölfarið að margt fólk ofmetur stórlega hversu mikið krónan sveiflast miðað við aðra gjaldmiðla. Hér er því sveifla ýmissa gjaldmiðla gagnvart dollar síðustu tíu árin, þ.e. mun á lægsta punkti upp í þann hæsta.
- Argentínski pesóinn; 1811,66%
- Tyrknesk líra: 430,75%
- Brasilíski realinn: 262,15%
- Rússneska rúblan: 201,48%
- Suður-Afríkanska randið: 193,34%
- Norsk króna: 125,67%
- Mexíkanski pesóinn: 111,58%
- Ástralski dollarinn: 92,16%
- Serbneski dínarinn: 78,99%
- Indverska rúpían: 76,17%
- Pólskt zloty: 62,11%
- Nýsjálenski dollarinn: 56,81%
- Kanadadollar: 54,46%
- Íslensk króna: 51,07%
- Breska pundið: 49,32%
- Evra: 42,84%
- Svissneski frankinn: 42,47%
- Albanskt lek: 39,05%
- Suður-Kóreska wonið: 25,70%
- Kínverski júaninn: 18,85%
- Sádi Arabíski Riyalinn: 1,51%
- Líbanonska pundið: 1,34%
Í sjálfu sér felur það ekki í sér stöðugleika að tengja krónuna við einn gjaldmiðil. Sá er föst stærð, heldur fleki sem rís og hnígur eftir ölduganginum. Að leita eftir stöðugleika í gjaldmiðlamálum er leit af einhverju sem ekki er til.
Í Líbanon er pundið bundið við dollar og sveiflast lítið, en þar er enginn efnahagslegur stöðugleiki. Og af þeim sökum, m.a. annars, logar landið.