Stjórnmál Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra sagði, í útvarpsþættinum Sprengisandur í morgun, að stöðugleikaskattur við losun fjármagnshafta muni gjörbreyta mörgu í íslensku efnahagslífi. Hundruðir milljarðar verða eftir í landinu og það mun hafa mikil áhirf.
„Það er alveg ljóst að til þess að hægt sé að aflétta höftum þarf töluvert af þessu fjármagni að verða eftir í landinu, öðruvísi geta þessir fjárfestar ekki innleyst hagnaðinn og farið út með restina,“ sagði forsætisráðherra.
Hann sagði einnig: „Þar með gerir þetta okkur betur í stakk búin til þess að sinna öllu því sem stjörnvöld þurfa að sinna fyrir almenning í landinu.“
Hægt er að hlusta á viðtalið hér.