Stjórnvöld vita ekki hver afkoma sjávarútvegs er
Ragnar Önundarson skrifar:
Margt bendir til að stjórnvöld viti ekki hver
raunveruleg afkoma greinarinnar er. Ef fyrirtæki komast upp með að flytja út
með því að selja öðru fyrirtæki í sömu eigu, geta menn stillt gróðann af og
látið hann koma fram þar sem skattar eru lágir. Það er td. selt mikið magn til
Kýpur, en íslenskur fiskur er ekki áberandi þar í verslunum og á matseðlum.
Sjálfsagt er að hindra svona skattasniðgöngu, banna hana og afturkalla kvóta
sem slíkir loddarar hafa fengið úthlutaðan. En Kristján Þór grunar ekkert, „hreinum
er allt hreint“.
Afritaðu og límdu þessa vefslóð í WordPress vefinn þinn til þess að fella inn
Afritaðu og límdu þennan kóða yfir í vefinn þinn til þess að fella inn