Engar úrbætur fyrir eldri borgara og öryrkja.
Guðmundur Franklín Jónsson skrifar:
Efnahagsaðgerðir stjórnvalda fá algjöra falleinkunn. Engin opinber gjöld felld niður nema gistinátta – og bankaskatturinn. Afborganir af húsnæðislánum eða verðtrygging eru ekki fryst. Engar úrbætur fyrir eldri borgara og öryrkja. Ekki er minnst á lyfja- eða matvælaöryggi. Stjórnvöld haga sér eins og okurlánari að nýta sér fólk í neyð.