- Advertisement -

Stjórnvöld gera árás á lífeyrisréttindi verkafólks í erfiðisvinnu!

Vilhjálmur Birgisson formaður SGS skrifar:

Enda útilokað að leggja þær byrðar á verkafólk að það eitt og sér verði látið bera þær byrðar að hið réttláta framlag til jöfnunar á örorkubyrði verði skert og fellt niður.

Vinnumarkaður Ég trúi alls ekki að ríkisstjórn Íslands ætli að ráðast af alefli á lífeyrisréttindi verkafólks með því að skerða framlög til jöfnunar á örorkubyrði lífeyrissjóðanna um nokkra milljarða á næsta ári og fella síðan framlagið alveg niður 2026.

Að hugsa sér að stjórnvöld skuli voga sér að leggja þetta til í ljósi þess að lífeyrissjóðir verkafólks sem vinna erfiðisvinnu eru með langmesta örorkubyrði af öllum sem eru á íslenskum vinnumarkaði.

Það er rétt að geta þess að sökum þess að örorkubyrði er meiri hjá lífeyrissjóðum innan raða verkafólks en hjá öðrum starfsstéttum þá er réttindaávinnsla minni en hjá örðum sjóðum. Meira að segja dugar framlag til jöfnunar á örorkubyrði í dag ekki einu sinni til, til að jafna þennan mun. Þetta vita stjórnvöld mætavel en ætla samt að skella þessari rennandi blautu tusku í andlitið á verkafólki sem vinnur erfiðisvinnu.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Eitt er víst að SGS mun og ætlar alls ekki að láta þessa aðför að lífeyrisréttindum verkafólks sem vinnur erfiðisvinnu átölulaust!

Munum að lífeyrissjóðir eru samtryggingarsjóðir og hvaða sanngirni er fólgin í því að smala vinnandi fólki eftir starfgreinum í ljósi þeirra bláköldu staðreynda að hjá verkafólki er örorkubyrði margfalt meiri en hjá öðrum starfsgreinum. Hvaða samtrygging er það? Framlag til jöfnunar á örorkubyrði hefur verið til þess fallið að jafna þennan óréttláta mun á milli lífeyrissjóða með aukna örorkubyrði en nú á að fella það niður með umtalsverðri skerðingu hjá lífeyrissjóðum verkafólks sem nú þegar búa við skerta réttindaávinnslu vegna mikillar örorkubyrði.

Þessi skerðing og niðurfelling á framlagi til jöfnunar á örorkubyrði er fyrst og fremst árás á lífeyrisréttindi verkafólks innan Starfsgreinasambands Íslands. Það vita það allir að hærri örorkutíðni hefur áhrif á skuldbindingar lífeyrissjóða og dregur úr getu þeirra til að greiða lífeyri.

Það liggur t.d. fyrir að þetta mun bitna illilega á sjóðsfélögum hjá öllum lífeyrissjóðum sem tilheyra SGS. Það blasir við að ef þessi árás stjórnvalda á lífeyrissjóði verkafólks verður að veruleika þá mun þurfa að skerða núverandi lífeyrisgreiðslur til sjóðsfélaga sem og réttindaávinnslu um allt að 4%.

Það er allavega morgunljóst að SGS mun ekki geta látið þetta átölulaust og mitt mat er klárt að ef þetta verður að veruleika þá er einsýnt að umbylta þarf kerfinu t.d. með því að fólk fái að ráða sjálft í hvaða lífeyrissjóð það greiðir og eða að ríkið sjá alfarið um alla örorku.

Enda útilokað að leggja þær byrðar á verkafólk að það eitt og sér verði látið bera þær byrðar að hið réttláta framlag til jöfnunar á örorkubyrði verði skert og fellt niður.

Ég veit ekki annað en Samtök atvinnulífsins séu algjörlega sammála Starfsgreinasambandi Íslands að það er alls ekki hægt að skerða og afnema framlag til jöfnunar á örorkubyrði í verkamannalífeyrissjóðunum.

Eitt er víst að SGS mun og ætlar alls ekki að láta þessa aðför að lífeyrisréttindum verkafólks sem vinnur erfiðisvinnu átölulaust!


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: