Stjörnu-Sævar og Þórhildur keyptu glæsiíbúð í Fossvogi á 132 millur: Sjáið myndirnar!
Sjálfur Stjörnu-Sævar Helgi Bragason og sambýliskona hans, Þórhildur Fjóla Stefánsdóttir, skelltu sér á glæsiíbúð í Fossvoginum.
Íbúðin er engin smásmíð, heilir 176 fermetrar að stærð, við Lautarveg; einni nýjustu götum hverfisins.
Sævar Helgi er stjörnufræðingur sem allir þekkja, enda viskubrunnur og óþrjótandi áhugasamur um himingeiminn; Þórhildur Fjóla er menntaður hugbúnaðarsérfræðingur, en parið fallega eignaðist son í fyrra.
Þetta er þeirra fyrsta barn saman, en fyrir á Sævar Helgi son.
Það á ekki eftir að væsa um fjölskylduna á Lautarvegi því þar er mikil veðursæld og í götunni býr líka fullt af skemmtilegu fólki.
Ef þú vilt verða nágranni Sævars Helga og Þórhildar þá er efsta hæðin í húsinu komin á sölu en hún er föl fyrir 114 milljónir.