Þorvaldur Gylfason skrifaði:
Stjórnsýslan í landinu er í molum líkt og í Bandaríkjum Trumps.
Dæmi 1: Áhrif ferðamannastraums undangenginna ára á náttúru landsins hafa ekki verið metin. Engin opinber skýrsla er til um málið þrátt fyrir fjölda áskorana. Þessi vanræksla er vandræðaleg m.a. í ljósi þess að VG hefur stýrt umhverfisráðuneytinu frá 2017.
Dæmi 2: Áhrif ólíkra sóttvarnaráðstafana á efnahag landsins hafa ekki heldur verið athuguð. Tillögum hagfræðinga um slíka athugun á kostum og göllum ólíkra markmiða og leiða t.d. að norskri fyrirmynd hefur ekki verið sinnt. Stjórnvöld vaða heldur áfram í villu og svíma.
Dæmi 3: Vandinn er ekki nýr. Þegar AGS lagði fram tillögur um neyðarrástafanir í miðjum hamförum 2009 sögðu stjórnmálamenn við starfsmenn AGS: Við skulum skoða málið að loknum sumarleyfum.
Heimild: AGS.