Stjórnmál fyrir rugludalla og dóna
Guðmundur Steingrímsson skrifaði fína grein í Fréttablað gærdagsins.
Grein Guðmundar hefst svona:
Eitt helsta einkenni, og jafnframt það bagalegasta, á stjórnmálum okkar daga er þetta: Ef þú ert nógu mikill rugludallur og helst dóni líka sem skeytir engu um sannleika eða rök, geturðu verið nokkuð viss um að þú eigir góðan sjens á að ná í um það bil 20% fylgi í kosningum, jafnvel meira. Slíkt fylgi er nóg til að hafa veruleg áhrif í vestrænum lýðræðisríkjum.
Og enda svona:
„Eftir stendur þá spurningin: Hvað á að gera í þessu? Mannkynið má alls ekki við svona löguðu. Blygðunarlausir apakettir mega ekki æða með veröldina í enn einn hörmungarhringinn. Jörðin hitnar. Nú þarf aðgerðir og samstöðu. Ógnir blasa við. Stærsta viðfangsefni nútímastjórnmála — og lífið liggur við — er að finna leið til þess að segja drullusokkum á einhvern hátt sem virkar að grjóthalda kjafti og skammast sín.“
Endilega lesið alla greinina. Fyrirsögnin er Miðjunnar.