Steinsofandi ríkisstjórn
„Ársfjórðungstölur gefa ekki síður mikilvægar vísbendingar og að þessu sinni segja þær að tekið sé að hægja á en um leið að staðan sé viðkvæm. Hagvöxtur fjórða ársfjórðungs í fyrra var mun minni en hinna fjórðunganna, eða 3,1% á móti 7,6% að meðaltali á hinum þremur fjórðungunum. Einkaneyslan hefur sömuleiðis minnkað verulega, er komin niður í 4,7%, en var að meðaltali yfir 10% á hinum þremur fjórðungum ársins,“ segir í leiðara Moggans.
Samkvæmt þessu hefur einkaneysla minnkað um helming frá sama tíma árinu áður. Verðbólgan bítur í. Það þrengir að fólki.
„Seðlabankinn hefur þurft að hækka vexti verulega frá árinu 2021 eftir hraðar lækkanir frá árinu 2019, ekki síst eftir að kórónuveiran lamaði stóra hluta efnahagslífsins. Vonir stóðu til þess síðla árs í fyrra að þessum vaxtahækkunum færi að linna, en viðvarandi verðbólguþrýstingur og spenna í hagkerfinu gerði út af við það,“ segir í leiðara Moggans, sem má örugglega eigna Davíð Oddssyni.
Ríkisstjórnin hefur sofið vært meðan afkoma fólks hefur hríðversnað. eins og sjá má hversu neysla fólks hefur minnka milli ára. Halda má að takmark stjórnarinnar, sé að fæla fólk burt af landinu. Þangað sem fólk getur lifað án þess að peningar þess brenni upp. Og það vegna aðgerðarleysi og vanmáttar ríkisstjórnar Íslands.
-sme