„Stefnum í enn eitt ævintýrið og brotlendinguna í fjármálageiranum“
Vonandi verðum við ekki með svona lága vexti til framtíðar.
Þór Saari skrifar:
Stefnum í enn eitt ævintýrið og brotlendinguna í fjármálageiranum þegar komandi vaxtahækkanir munu setja öll þessi lán í uppnám. Á öllu árinu 2019 voru 83 prósent allra nýrra óverðtryggðra húsnæðislána hjá bönkum tekin á breytilegum vöxtum.
Lán með því sem á Íslandi er kallað „fastir breytilegir vextir“ eða bara „breytilegir vextir“ eru yfirleitt með þeim skilmálum að bankarnir geta breytt vöxtunum einhliða, sem er alveg galið út frá bæði neytendasjónarmiðum og fjármálastöðugleika.
Seðlabankastjóra sjálfum líkar þetta ágætlega enda alinn upp við „Kauphinking“ í fjármálum, en varaseðlabankastjórinn Rannveig veit hvað klukkan slær.
Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóri peningamála í Seðlabanka Íslands, lýsti til að mynda yfir áhyggjum af þessari þróun á blaðamannafundi sem haldinn var í lok ágúst. „Það sem maður hefur áhyggjur af, bæði út frá peningastefnunni og fjármálastöðugleika, er að heimilin séu að skuldsetja sig of mikið á breytilegum vöxtum. Vonandi verðum við ekki með svona lága vexti til framtíðar. Það er kannski það sem maður hefur mestar áhyggjur af í dag varðandi miðlunina til heimila.“
Miðlun peningamálastefnunnar (vaxtahækkanir) mun væntanlega ganga betur enda hefur hún verið næsta óvirk með alla þessa verðtryggingu, en megi guð hjálpa heimilunum þegar þar að kemur.