Katrín Oddsdóttir skrifaði stutta grein, en þarfa:
Hef ekki náð að fylgjast ítarlega með umræðunni um söluna á Íslandsbanka en þykist þó vita eftirfarandi:
- Meiri hluti landsmanna vill ekki selja bankann.
- Meiri hluti landsmanna treystir ekki sitjandi fjármálaráðherra til að selja bankann.
- Að ýmsir sérfræðingar halda því fram að nú sé óheppilegur tími til þess að selja bankann.
- Að það er stutt í kosningar og því hægt að gera þetta að baráttumáli ef Sjálfstæðisflokkurinn vill fá umboð til að selja þennan banka. Þess vegna spyr ég: Af hverju erum við einu sinni að tala um það að selja þennan banka?