Gestir í þættinum Sprengisandur á Bylgjunni í fyrramálið verða; Brynhildur Pétursdóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Þorsteinn Víglundsson og Þórir Guðmundsson.
Rætt verður um neytendamál, samkeppni, aðgangstakmarkanir að íslenskum neytendum, skuldastöðu Íslands, pólitíska umræðu, efnahagsmál, Framsóknarflokkinn, gjaldeyrishöft, ástandið á vinnumarkaði, hugsanleg átök í haust og vetur, fjárfestingar, þróunaraðstoð og margt annað.
Undirbúningur er á fullu.
Sprengisandur er á Bylgjunni alla sunnudagsmorgna milli klukkan tíu og tólfa.
Þú gætir haft áhuga á þessum