Vodafone og Þórdís Elva Þorvaldsdóttir, rithöfundur, munu í sameiningu bjóða feldrafélögum grunnskóla fræðslu um ábyrga hegðun í stafrænum samskiptum. Verkefnið ber nafnið Ber það sem eftir er: Um sexting, hefndarklám og netið.
Markmiðið er að vekja athygli á orsökum og afleiðingum myndbirtinga á netinu, sem geta haft mikil áhrif á líf og framtíð þeirra sem fyrir því verða. Upplýst samfélag er jú besta forvörnin. Fyrirlestraröðin verður frá 28. janúar 2015 og fram á vor. Aðgangur er ókeypis og allir foreldrar eru hvattir til að mæta og fá góð ráð um hvernig eigi að ræða þessi mál við börn og ungmenni.
Fræðslan er í höndum Þórdísar Elvu Þorvaldsdóttur, höfundar verðlaunamyndanna „Fáðu já!“ og „Stattu með þér!“ sem notaðar eru í kennslu í grunnskólum landsins. Henni til aðstoðar er Sigríður Sigurjónsdóttir, MSc í sálfræði, sem hefur sérhæft sig á sviði kynferðisofbeldis gegn ungmennum og áhrif nettælingar á andlega heilsu brotaþola.
„Sexting (að skiptast á nektarmyndum) meðal barna og unglinga hefur aukið enn á vandann en persónuleg mynd send vini getur auðveldlega snúist upp í martröð ef hún er misnotuð. Það versta er að netið gleymir engu – það sem þangað fer verður ekki aftur tekið,“ segir í tilkynningunni.
„Fræðsla af þessu tagi er fagnaðarefni. Nauðsynlegt er að auka vitundarstigið um afleiðingar myndbirtinga á netinu,“ er haft eftir Friðrik Smára Björgvinssyni, yfirlögregluþjóni hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í fréttatilkynningu.
Fyrirlestrarröðin hefst í Sæmundarskóla þann 28. janúar. Hún mun síðan fara á milli grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, auk valinna grunnskóla á landsbyggðinni í fyrstu, fram á vor.
Hægt er að kynna sér efni fræðslunnar nánar og fylgjast með framvindu fyrirlestraraðarinnar á vefsvæði Vodafone: www.vodafone.is.