Ágúst Ólafur Ágústsson skrifaði:
Nú eru um hundrað ár liðin síðan ákveðið var að skrá gengi íslensku krónunnar sérstaklega. Fram til ársins 1920 var íslenska krónan á pari við dönsku krónuna. Gengi dönsku krónunnar er nú um 18 íslenskar krónur. Ef tekið er tillit til myntbreytingarinnar árið 1981 er gengi dönsku krónunnar um 1.800 gamlar íslenskar krónur. Verðgildi krónunnar gagnvart hinni dönsku er því aðeins 0,05% af því sem það var árið 1920, sem jafngildir rýrnun um 99,95% á þessu 100 ára tímabili. Vandfundið í veröldinni er það fyrirbæri sem hefur rýrnað jafnmikið. Ef við hefðum ekki tekið tvö núll af krónunni 1981 myndi kaffibollinn kosta í dag 50.000 kr!
Sumir halda að gengisfellingar (en með þeim rýrnar virði krónunnar) séu gott hagstjórnartæki en þetta sama fólk gleymir að gengisfellingar gerast á kostnað almennings. Með gengisfellingu eru verðmæti færð frá almenningi (krónur þessa fólks verða minna virði og innfluttar vörur hækka í verði) og verðmætin eru færð til útflutningsgreina s.s. útgerðarinnar og rútufyrirtækja.
Ég leyfi mér því að spyrja, er þetta ekki fullreynt með íslensku krónuna? Er 100 ára sorgarsaga ekki nóg? Eigum við ekki að leyfa íslensku krónunni að sofna sínum Þyrnirósasvefni?
Skrifin eru fengin af Facebooksíðu Ágústs Ólafs.