Byrjum á Mogganum í dag. Þar er rætt um uppstokkun á ráðuneytum milli stjórnarflokkanna:
„Ef til þess kemur eru bæði Framsóknarmenn og Sjálfstæðismenn sagðir fylgjandi því að matvælaráðuneytið hverfi frá Vinstri grænum, enda er mikil gremja í gangi yfir framgöngu Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra, ekki síst meðal Sjálfstæðismanna. Mögulegt er að Svandís fái á sig ákúrur frá umboðsmanni Alþingis vegna framgöngu sinnar í hvalveiðimálinu og verði tæpast vært í ráðuneytinu eftir það. Það mun þó vart leiða til þess að Vinstri grænir missi spón úr aski sínum. Þyrfti því að skjóta öðrum ráðherrastól undir Svandísi. Það myndi aftur á móti kalla á uppstokkun ráðuneyta á milli stjórnarflokkanna.“
Gat verið. Öllu er fórnandi til að koma í veg fyrir breytingar á umhverfi sjávarútvegsins. Hverju ætlar Katrín að svara? Stendur hún gegn Bjarna og Sigurði Inga? Slær í borð og segist slíta stjórninni gefi þeir ekki kröfuna eftir? Nei, Svandís er líklegri til að hætta sem ráðherra gangi vilji D og B eftir.
Ef fer sem horfir er Vinstri grænum ætlað að éta meiri kúk. Stærri skammt en nokkru sinni áður. Óburðugt er þetta. Einkum Sjálfstæðisflokki er ætlað að verja óbreytta stjórn fiskveiða. Við sjáum á uppgjörum sjávarútvegsfyrirtækja hversu hagsmunirnir eru miklir. Tröllvaxnir.
Tilvera Sjálfstæðisflokksins byggist á hagsmunagæslu við sjávarútvegsins, fyrst og fremst. Mesta spennan varðandi framhald ríkisstjórnarinnar er um Svandísi og sjávarútveginn.
-sme