Vilhjálmur Birgisson skrifaði:
Þetta er orðin svo mikill brandari hvenrig hagsmunaaðilar viðskiptabankanna þriggja tala ætíð upp stýrivaxtahækkanir Seðlabankans. Það þarf svo sem ekkert að koma á óvart enda hafa þeir hag af háu vaxtastigi.
En í þessu viðtali segir Konráð S. Guðjónsson, hagfræðingur Arion banka, of snemmt að fagna sigri og á hann enn von á því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hækki stýrivexti að nýju í næsta mánuði.
Hugsið ykkur verðbólgan fer úr 8,9% milli mánaða í 7,6% sem er lækkun um 1,3% en samt koma þessir snillingar og tala um að stýrivextir muni senniæega hækka í næsta mánuði.
Ótrúlegt að menn kalla ekki eftir lækkun vaxta í ljósi þess að greinilegt er að verðbólgan er á undanhaldi eins og er að gerast í öllum þeim löndum sem við erum að bera okkur saman við.