- Advertisement -

Smálánin: Sparisjóður Strandamanna sér að sér

„Neytendasamtökin fagna því að Sparisjóður Strandamanna hafi loksins ákveðið að hætta viðskiptum við Almenna innheimtu ehf.“

Þetta segir á heimasíðu Neytendasamtakanna. Þar segir og:

„Almenn innheimta hefur haft þann eina starfa að innheimta kröfur vegna smálána og þrátt fyrir að lánin brytu í bága við lög um neytendalán hefur ekki verið hægt að stöðva innheimtustarfsemina þar sem hún fellur utan eftirlits FME. Rúmt ár er síðan Neytendasamtökin hvöttu Sparisjóð Strandamanna fyrst til að hætta viðskiptum við Almenna innheimtu og koma þannig í veg fyrir aðgang fyrirtækisins að greiðslumiðlunarkerfinu. Núna hefur ný stjórn Sparisjóðsins gefið það út að viðskiptum við Almenna innheimtu verði hætt og er það mikilvægta skref í baráttunni við ólöglega smálánastarfsemi.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Gætu þurft að loka reikningum

…hafa stundað að skuldfæra af reikningum lántakenda án heimilda.

„Því miður er björninn ekki alveg unninn. Smálánafyrirtækin hafa stundað það að skuldfæra af reikningum lántakenda þrátt fyrir að ekki liggi fyrir bein heimild til þess. Í mörgum tilvikum hafa þau tekið út alla fjárhæð inn á reikningum fólks, nánast um leið og fé er lagt inn á reikningana um mánaðamót. Því miður reynist afar erfitt að koma í veg fyrir þessa ósvinnu. Það er mikilvægt að þeir sem telja sig hafa ofgreitt láti loka þeim bankareikningi eða kreditkorti sem smálánin hafa verið lögð inn á til að koma í veg fyrir óvæntar og óheimilar skuldfærslur. Hafi slíkar skuldfærslur farið í gegn er um að gera að hafa samband við bankann og gera kröfu um endurgreiðslu. Í þeim tilvikum sem Neytendasamtökin vita af, hafa bankarnir og kortafyrirtækin staðið sig vel í að aðstoða viðskiptavini sína við endurheimt fjárins. Samtökin gera ráð fyrir að svo verði áfram, en óska jafnframt eftir að fá að vita ef svo er ekki. Hægt er að koma ábendingum til samtakanna með því að senda tölvupóst á smalan@ns.is.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: