Slökkvið á upptökuvélunum
Samfélag „Athyglisverð umræða og ég verð að viðurkenna að það kemur mér alltaf jafnmikið á óvart þegar stjórnmálamenn skipta um hlutverk í rökræðunni, já og skoðunum líka, eftir því hvort þeir eru í meirihluta eða minnihluta,“ skrifar Gylfi Arnbjörsson, forseti ASÍ, á Facebook.
Hann beinir orðum sínum að Bjarna Benediktssyni.
„Bjarni segir í umræðunni (og er að reyna að tala um fyrir stjórnarandstöðunni) að ,,Það er alveg eins víst að næst þegar fjárlögin koma hér á dagskrá, hvort sem það verður á næsta ári eða jafnvel eftir eitt, tvö, þrjú ár, þá noti menn þetta slæma fordæmi til að réttlæta enn lengri og vitlausari umræðu.“ Þessi umræða núna er semsagt búin að slá nýtt met, met sem sett var í afgreiðslu fjárlaga árið 2012 þegar Bjarni fór fyrir umræðu (sumir gætu jafnvel sagt málþófi) þáverandi stjórnarandstöðu sem samanstóð af Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki (Borgaraflokkurinn var reyndar ekki í ríkisstjórn en studdi hana beint og óbeint ef ég man rétt).“
Í þættinum Sprengisandur, iðinn sunnudag, nefndi Bjarni þessa löngu umræðu um fjárlögin 2012 og metið sem þá var sett.
„Nú skilur hann ekkert í framgöngu stjórnarandstöðunnar og finnst þetta aðför að virðing þingsins. Ég held að það myndi gagnast betur ef stjórnmálamenn væru í ríkari mæli samkvæmir sjálfum sér og legðu sig fram um málefnalega umræðu. Liður í því væri að slökkva á upptökuvélunum og einbeita sér að lausn verkefnisins á málefnalegan hátt, en ekki að nota ræðustólinn til að ávarpa kjósendur og reyna að hafa áhrif á skoðanakannanir. Afstaða fólks til stjórnmála á ekki að vera til dægurmála heldur stefnumiða og beinna ákvarðana. Afleiðing þessarar stjórnmálamenningar er að ýta undir skammtímalausnar og skammtímavinsældir á kostnað langtímalausna og ábyrgðar,“ skrifar Gylfi Arnbjörnsson.