WOWair reyndi aftur að fá Icelandair sem meðeigenda.
Túristi greinir frá að þrátt fyrir yfirstandandi samningaviðræður við Indigo Partners þá leitaði forvarsfólk WOW air til Icelandair í vikunni til að kanna áhugann á því taka upp þráðinn í yfirtökuferlinu sem var slitið undir lok nóvember. Þetta herma áreiðanlegar heimildir Túrista. Ekki mun hafa reynst áhugi á því innan raða Icelandair að hefja að nýju kaupviðræður við Skúla.