- Advertisement -

Skjaldborg gegn kerfisbreytingum

- kjósendur Vg kölluðu eftir róttækum breytingum en uppskáru ríkisstjórn stöðnunar.

Svanur Kristjánsson: „Ríkisstjórn undir forystu VG er einnig að stefna landinu í harðvítug stéttaátök, neitar m.a. að afturkalla stórfelldar kauphækkanir til alþingismanna og annarra valdhafa.“

Svanur Kristjánsson, stjórnmálaprófessor emeritus, skrifar fína grein sem birtist í Fréttablaði dagsins. Það besta í þessu tölublaði dagsins.

Svanur talar fyrst um fylgishrun Vg, sem eðlilega er mikið. „Engin ástæða er til annars en að taka mark á þessum vísbendingum um fylgishrun VG. Skemmst er þess að minnast að flokkurinn hlaut samtals 14.477 atkvæði í síðustu þingkosningum í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur en 2.700 atkvæði í nýafstöðnum borgarstjórnarkosningum.“

Svanur skrifar einnig þetta: „Samkvæmt síðustu skoðanakönnun Gallup skiptast kjósendur nú í tvo jafnstóra hópa í afstöðu til ríkisstjórnarinnar. Engu að síður halda tveir stjórnarflokkanna, Sjálfstæðisflokkur og Framsókn, fylgi sínu en VG er í frjálsu falli – mælist einungis með ríflega 11% fylgi.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Þeir kjósendur sem fengu sitt

„Kjósendur Sjálfstæðisflokks og Framsóknar fengu einfaldlega þá stjórnarstefnu sem flokkarnir tveir lofuðu: Slegin er skjaldborg gegn öllum kerfisbreytingum. Engar breytingar gerðar í sjávarútvegi eða landbúnaði. Engar umbætur í húsnæðismálum. Endurskoðun stjórnarskrárinnar háð samþykki forystumanna allra flokka. 1. desember 2018 munu því Íslendingar fagna 100 ára fullveldi án þess að valdaflokkar landsins hafi efnt hátíðleg loforð um að endurskoða bráðabirgðastjórnarskrá lýðveldisins frá 1944. Óbreytt er stjórnarskrá sem í grundvallaratriðum er byggð á stjórnarskrá konungsríkisins Danmerkur – frá 1849!“

Svanur: „Umbótaöflin í íslenskri verkalýðshreyfingu og stjórnmálum munu væntanlega sigra án atbeina forystufólks VG.“

Án atbeina forystufólks VG

Svanur Kristjánsson lítur fram á veginn:

„Kjósendur VG kölluðu eftir róttækum breytingum en uppskáru ríkisstjórn stöðnunar. Þingflokkur VG lýsti meira að segja yfir trausti á dómsmálaráðherra sem Hæstiréttur Íslands hefur fundið seka um lögbrot við skipun dómara í einn af dómstólum landsins. Ríkisstjórn undir forystu VG er einnig að stefna landinu í harðvítug stéttaátök, neitar m.a. að afturkalla stórfelldar kauphækkanir til alþingismanna og annarra valdhafa.

Umbótaöflin í íslenskri verkalýðshreyfingu og stjórnmálum munu væntanlega sigra án atbeina forystufólks VG. Engu að síður er núverandi erindisleysi og fylgishrun VG ekkert fagnaðarefni. Umbótahreyfingin í landinu yrði sterkari með VG innanborðs. Vonandi að svo megi verða. Varla er erindi forystu VG fyrst og fremst að þjóna ríkjandi valdakerfi í landinu?“

 

 


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: