Guðni Ölversson skrifar:
Þetta er allt hið versta mál. Allir vita að skipstjóri er á skipi sínu eins og einvaldskonungur í ríki sínu upp úr miðöldum, Hann ræður og enginn hefur leyfi til að mótmæla hans ákvörðunum. En nú eru miðaldir löngu liðnar og engin lútir einræði í nútíma samfélagi í hinum frjálsa heimi. Alla vega ekki á Norðurlöndum. Skipstjórinn en ákærður fyrir lögbrot og vanrækslu um velferð áhafnar sinnar. Spurningin sem er ósvarað í þessu hundleiðinlega máli er! Af hverju brást skipstjórinn undirmönnum sínum? Var það vegna ákafa hans um að ná í fisk eða var það vegna pressu frá útgerðinni um að túrinn yrði kláraður „með sóma“. Skítt veri þó einhverjir karlar þyrftu að kljást við við kófið í aðgerðinni. Eftir stendur hvort orsökin er græðgi og pressa útgerðarinnar eða dómgreindarleysi skipstjóra. Nema hvoru tveggja sé? Ljóst er þó að skipstjórinn, einn, berð ábyrgðina þegar upp er staðið.