Sjóvá svarar DV vegna minna skrifa
DV fellur í fúlan pytt. Því birta þau yfirklór markaðsstjórans án þess svo mikið sem að fá svör hans og rökstuðning fyrir þeirri fullyrðingu að dagur umfram þrjá mánuði í útlöndum skapi aukna áhættu? Og eins að kostnaður í öðrum löndum sé hærri eftir þrjá mánuði en fyrir. Þið hjá DV, flest sem nafni minn hjá Sjóvá segir er ekki tilbúið til birtingar.
Les þetta á DV: DV barst skeyti frá Sigurjóni Andréssyni, markaðsstjóra hjá Sjóvá, sem óskaði eftir því að eftirfarandi upplýsingum yrði komið á framfæri.
„Skilmálar kaskótryggingar okkar gilda á ferðalagi erlendis í 90 daga án viðbótariðgjalds en ef viðskiptavinir dvelja lengur þurfa þeir að borga viðbótariðgjald, sem við reynum þó að stilla í hóf.
Ef viðskiptavinir fara á eigin bíl t.d. með Norrænu í ferðalög dugar 90 daga reglan þeim lang oftast. Þeir sem eru með bílana sína lengur úti greiða þetta viðbótariðgjald vegna aukinnar áhættu og hærri kostnaðar erlendis ef til tjóns kemur.