Myndin er frá fundi sunnlenskra Sjálfstæðismanna.

Stjórnmál

Sjálfstæðismenn vilja þétta raðirnar

By Miðjan

October 09, 2024

Stjórnmál Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra skrifaði á Facebook:

„Þéttum raðirnar!

Það skiptir máli að það sé gaman í stjórnmálum og það var svo sannarlega gaman er yfir 200 sjálfstæðismenn í Suðurkjördæmi komu saman síðasta laugardag.

Fundurinn bar yfirskriftina „Þéttum raðirnar“ því það veitir svo sannarlega ekki af. Við erum með fólkið, stefnuna og gildin á hreinu. Ákallið frá grasrótinni er skýrt: Að við berjumst af enn meiri krafti fyrir venjulegt fólk á grundvelli sjálfstæðisstefnunnar.

Það er ljóst að það verður fjör í pólitíkinni í vetur og miðað við þennan viðburð er ljóst að það verður gaman að starfa með fólkinu okkar í vetur.“

Myndir frá fundinum. Ásmundur Friðriksson, Guðrún heldur tölu og Birgir Þórarinsson. Myndirnar eru fengnar af Facebookfærslu frá fundinum.

Við erum eflaust nokkuð mörg sem þykir þversögn, og jafnvel pólitískur ómöguleiki, í þessum orðum Guðrúnar: „Að við berjumst af enn meiri krafti fyrir venjulegt fólk á grundvelli sjálfstæðisstefnunnar.“

Víst er að kosningabaráttan er að hefjast. Í morgun tilkynnti Óli Björn Kárason að hann geti ekki stutt ríkisstjórn þar sem Vinstri græn eiga sæti í ríkisstjórn. Eflaust kemur nú margt nýtt daglega sem stækkar gjárnar sem þegar hafa myndast í stjórnarsamstarfinu.