Umræðan Óvíst er hvernig sagan mun fjalla um hina ólánsömu ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar. Eflaust fær sú slaka ríkisstjórn ekki merk ummæli.
Davíð Oddsson, fyrrum formaður Sjálfstæðisflokksins, skrifar í dag um samstarfsflokkana tvo. Honum þykir ekki mikið til þeirra koma.
„Flokkarnir tveir sem enn sitja í ríkisstjórn en mælast ekki með mann á þingi í skoðanakönnunum eiga sérkennilegan feril þegar kemur að gömlum grundvallaratvinnugreinum þjóðarinnar. Sumir stuðningsmenn Bjartrar framtíðar telja að sá flokkur hafi slegið sér upp og skriðið inn á þing fyrir síðustu kosningar með því að berjast gegn bændum. Það hafi átt upp á pallborðið í einhverjum hópum, en ekki er líklegt að þeir hafi verið stórir,“ skrifar Davíð og gefur svo í.
Þá er það Viðreisn: „Nú hefur hinn smáflokkurinn skipað fulltrúa í nefnd sem fjallar um verðlag búvara og þá tókst þannig til að alræmdur andstæðingur landbúnaðarins var skipaður í nefndina. Ef til vill telur þessi smáflokkur að með því að kasta þannig stríðshanskanum framan í íslenskan landbúnað megi hífa flokkinn upp og inn á þing, en það er ekki líklegt að slíkar aðferðir dugi til þess.“
Davíð er landbúnaðurinn hugleikinn, en ekki síður sjávarútvegurinn:
„Það er þó ekki aðeins landbúnaðurinn sem smáflokkunum tveimur er í nöp við, sjávarútvegurinn hefur einnig orðið fyrir árásum. Flokkarnir settu til að mynda sem skilyrði fyrir stjórnarþátttöku að halda þessari undirstöðuatvinnugrein þjóðarinnar í óvissu með því að skipa nefnd um breytingar þóknanlegar andstæðingum þess farsæla fiskveiðistjórnarkerfis sem verið hefur við lýði um áratugaskeið.
Atvinnulífið í landinu þarf ekki að gráta það þó að þessir tveir furðuflokkar hverfi úr stjórnarráðinu og af vettvangi stjórnmálanna. Og vonandi verða niðurstöður kosninganna á þann veg að atvinnulífið þurfi ekki að óttast árásir á næsta kjörtímabili.“