Stjórnmál

Sjálfstæðisflokkurinn með 16,1% í könnun Prósents

By Miðjan

July 28, 2023

Gunnar Smári skrifaði:

Í sumarkönnun skoðanakannanafyrirtækisins Prósent mælist Sjálfstæðisflokkurinn aðeins með 16,1% fylgi, sem er nokkuð minna en flokkurinn hefur mælst með í könnunum Gallup og Maskínu. Prósent birtir ekki oft kannanir og ekkert eftir að Fréttablaðið fór á hausinn. Það er sumt annað skrítið í þessari könnun, t.d. að Píratar eru næstum jafn stórir og Sjálfstæðisflokkurinn með 14,5%.

Samkvæmt könnuninni gætu Samfylking, Píratar og Viðreisn myndað nokkuð trausta ríkisstjórn.

En annars myndi þingheimur skiptast svona ef kosningar enduðu eins og mæling Prósents segir til:

Ríkisstjórn:Sjálfstæðisflokkur: 11 þingmenn (-6)Framsóknarflokkur: 4 þingmenn (-9)Vg: 5 þingmenn (-3)Ríkisstjórn alls: 20 þingmaður (-18)

Hin svokallaða frjálslynda miðja:Samfylkingin: 18 þingmenn (+12)Píratar: 10 þingmenn (+6)Viðreisn: 6 þingmenn (+1)Hin svokallaða frjálslynda miðja: 34 þingmenn (+19)

Ný-hægri andstaðan:Flokkur fólksins: 5 þingmenn (-1)Miðflokkurinn: 4 þingmenn (+2)Ný-hægri andstaðan: 9 þingmenn (+0)

Stjórnarandstaða utan þings:Sósíalistaflokkurinn: Enginn þingmaður (óbreytt)

Könnunin var gerð dagana 22. júní til 19. júlí og er því í reynd eldri en könnun Maskínu frá síðustu viku og eldri en könnun Gallup sem birt verður eftir helgi.