Og ekki aðrir flokkar sem hafa innanborðs spillta menn sem gera sig að fífli við hin ýmsu tækifæri og eru þjóðinni til skammar.
Katrín Baldursdóttir skrifar:
Hvers vegna í ósköpunum er ekki hægt að hafa samgöngur í lagi á Vestfjörðum og leyfa Íslendingum og útlendingum að njóta þeirra gríðarlegu náttúrufegurðar sem þar er. Stjórnvöld geta gefið auðkýfingum fiskveiðiauðlindina okkar, rosalegar fjárhæðir á hverju ári en eru alveg blönk þegar á að byggja vegi til að halda landinu í byggð. Það er eitthvað gróðafyrirtæki sem segist ætla laga einhverja nokkra vegi þarna ef það fær að framkvæma einhver hræðilegustu eyðileggingu, Hvalárvirkjun, sem gerð hefur verið á íslenskri náttúru í langan tíma.
Og það er ekkert fast í hendi með vegina hjá þessu gróðafyrirtæki og þeim aðilum sem ætla að græða feitt með því að skemma þessi verðmætu víðerni sem eru á svæðinu. Þessi víðerni eru framtíðin, þau munu færa okkur svo miklu miklu meiri ávinning á öllum sviðum, en eitthvað forljótt mannvirki sem eyðileggur náttúruna, fossa og vötn. Og eins og Landvernd hefur bent á þá er hægt að laga vandamálið með rafmagnið á svæðinu með því að grafa línur í jörð.
En að sjálfsögðu er ekki til peningur fyrir því vegna þess stjórnvöld gefa auðkýfingum arðinn af auðlindunum okkar. Svo á líka að gefa gróðrapungum færi á að eyðileggja landið. Þetta er allt svona. Ömurlegt. Löngu kominn tími til að skipta út spillingaröflunum á þingi og í ríkisstjórn sem eru á spenanum hjá auðkýfingunum og gefa skít í hagsmuni venjulegs fólks. Sjálfstæðisflokkurinn má ekki koma nálægt stjórnun landsins í komandi framtíð. Og ekki aðrir flokkar sem hafa innanborðs spillta menn sem gera sig að fífli við hin ýmsu tækifæri og eru þjóðinni til skammar.