Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta stjórnar Strætó og vill einkavæða
Magnús Örn Guðmundsson, stjórnarformaður Strætó og bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi, segir í samtali við Morgunblaðið að við blasi að bjóða þurfi út rekstur strætó. Sjálfstæðisflokkurinn er í afgerandi meirihluta í stjórn strætó þótt flokkurinn sé í miklum minnihluta í Reykjavík, sem þó lagði til stærsta hluta starfseminnar þegar stofnað var til byggðasamlagsins Strætó.