Sigurjón Magnús Egilsson:
Ekki er hægt að útiloka að mótþrói Sjálfstæðisflokksins verði til þess að ekki verði að samstarfi Vg og Sjálfstæðisflokks.
Sjálfstæðisflokkurinn er við það springa undan kröfum um að aflétta eigi öllum höftum vegna Covid. Æðsti presturinn í Hádegismóum sparar sig hvergi. Hann kallaði til Halldór Benjamín sem fékk forsíðuna.
Svandís Svavarsdóttir tilkynnti gagnslitlar aðgerðir. Fræðimenn segja hana hafa gengið alltof skammt. En ekki Sjálfstæðisflokkurinn. Hann einn vill engar aðgerðir. Þrýstingurinn á flokkinn getur orðið óbærilegur.
Á langra valdatíð Sjálfstæðisflokksins hefur verið yddað stakt og stöðugt af Landspítalanum. Sem er núna mun veikari en hann var til dæmis fyrir fjármálaráðherratíð Bjarna Benediktssonar. Nú vill dómsmálaráðherrann opna allt. Svo unnt verði að djamma sem mest og sem lengst.
Horft er til Halldórs Benjamíns sem næsta formann flokksins. Hann fékk forsíðuna til að setja út á ráðstafanir Svandísar. Fari svo bæði VG og Sjálfstæðisflokkur sækist eftir heilbrigðisráðuneytinu verða átök að landa stjórnarsáttmála. Gefum Halldór Benjamín og Mogganum orðið:
„Það er afskaplega óheppilegt að það sé sífellt verið að slá í og úr og breyta takmörkunum sem lagt var upp með. Núna erum við á tuttugasta og fyrsta mánuði þessa ástands, níutíu prósent þjóðarinnar, tólf ára og eldri, eru bólusett og við verðum að fara að finna viðvarandi milliveg sem meginþorri manna og fyrirtækja getur farið að búa við og gert áætlanir samkvæmt þeim,“ sagði Halldór Benjamín í gær í samtali við Morgunblaðið um hertar sóttvarnaaðgerðir og tilheyrandi takmarkanir.
„Hringlandaháttur af þessum toga, þar sem endamarkmiðið virðist vera síbreytilegt og illa skilgreint, gerir ekkert annað en að rýra samstöðu og traust á þeim aðgerðum sem boðaðar eru hverju sinni. Að því leytinu til voru hertar aðgerðir sem tilkynntar voru vonbrigði,“ sagði hann.
Ekki er hægt að útiloka að mótþrói Sjálfstæðisflokksins verði til þess að ekki verði að samstarfi Vg og Sjálfstæðisflokks.