Gunnar Smári skrifar:
Sjálfstæðisflokkurinn er og hefur alltaf verið óstjórntækur; virðir ekki lýðræði né rétta stjórnsýslu þar sem hann telur sig vera í heilögum rétti við að færa eigur almennings til hinna ríku. Hann gengur um almannaeigur með ránshendi þar sem hann telur sameign almenning í eðli sínu vera rán sem hann vill leiðrétta. Sorglegt að flokkar sem þykjast virða almannahagsmuni skuli styðja þessi eigna- og valdaránssamtök hinna ríku til valda, átta sig ekki á að Sjálfstæðisflokkurinn er í reynd niðurrifsafl, krabbamein sem sest á almannahag og almannaeigur.