Mogginn segir að formennirnir þrír séu langt komnir með að „teikna“ upp ríkisstjórn. Til að leysa skiptingu ráðherraembætta er ætlunin að fjölga embættunum svo nóg verði til skiptanna.
Miðað við frétt Moggans stefnir í að Vinstri græn og Framsókn velji fyrst og Sjálfstæðisflokkur fái það sem út af stendur. Fimm ráðherra eða sex. Vinstri græn vilja, og fá, forsætisráðherra og Framsókn fjármálaráðherrann. Þá er orðið þröngt um Bjarna Ben. Dómsmálaráðuneytið er flokknum heilagt. Samt ekki nógu stórt fyrir Bjarna. Spennan er mest um hvar Bjarni verður.
Í Moggafréttinni segir: „Væri ráðherrum fjölgað um einn gæti Framsókn fengið fjóra, Sjálfstæðisflokkur fimm og Vinstri græn þrjá, en þá væru sjálfstæðismenn raunar að sýna nokkurt örlæti. Enn frekar fái hinir flokkarnir forsætisráðuneyti og fjármálaráðuneyti. Þá væri nær að fjölga ráðherrum um tvo, svo Framsókn fengi fjóra, Sjálfstæðisflokkur sex, en Vinstri græn þrjá. Þá væri fjöldinn í samræmi við styrkleika, en valdavægið órætt. Og svo er ekki víst að ríkisstjórnin vilji vera 13 til borðs!“
Eitt er að ekki er pláss fyrir þrettán ráðherra við ráðherraborðið í þinghúsinu.
Mogginn er eflaust nærri lagi. Sjálfstæðisflokkur fær áfram fimm ráðherra. Þau sem nú eru Guðrúnu Hafsteinsdóttur að auki. Eitt pláss losnar vegna löngutímabærra starfsloka Kristjáns Þórs Júlíussonar.
Framsókn fær þá fjóra og forseta þinsins. Þau sem eru ráðherrar verða það áfram. Ingibjörg Ólöf Isaksen verður ráðherra og Willum Þór forseti þingsins.
Þau sömu og nú eru verða ráðherra fyrir Vg.
Nú þarf að togast á um embættin. Til að allir verði mátulega sáttir eru framundan átök um verkefni einstakra ráðuneyta. Jafnvel verða ný stofnuð og önnur aflögð. Allt til að þjóna metnaði ráðherraefnanna.
-sme