Sitthvað er Katrín þá og Katrín nú
„Ég ætla að nota tækifærið og fagna því að nefndin taki þetta mál í sínar hendur því að það er með öllu óásættanlegt að stjórnvöld hyggist fara að ráðast í stórfellda bankasölu, banka-outlet mætti kalla það, þegar nánast allir eignarhlutir ríkisins eru settir á söluskrá þó að sagt sé að fara eigi varlega, án þess að fyrir liggi sýn um hvernig fjármálamarkaðurinn eigi að vera til framtíðar. Þetta á að vera eitt mikilvægasta markmið núna.,“ sagði Katrín Jakobsdóttur skömmu áður en hún gekk til samstarfs við Sjálfstæðisflokkinn.
Hér að neðan er stutt brot úr ræðu hennar.
Á sama tíma sagði Katrín á Alþingi;
„Íslenskt samfélag hefur orðið gegnsýrðara af grunsemdum og tortryggni á síðustu árum þegar kemur að viðskiptalífinu og þessi tíðindi sýna að eina leiðin til að eyða þeirri tortryggni sé að sýna vönduð vinnubrögð, ráðast í gagngera rannsókn á söluferlinu öllu eins og Alþingi samþykkti árið 2012 þannig að hægt sé að horfa fram á veginn, draga lærdóm af ferlinu áður en ráðist verður í aðra einkavæðingu á hlut ríkisins í bönkunum. Hæstv. ráðherra hefur boðað sölu á hlut ríkisins í bönkunum en hann hefur líka sagt, (Forseti hringir.) frú forseti, að mikilvægt sé að taka sér þann tíma sem þarf. Er ekki ástæða til að ljúka rannsókn á þessu ferli þannig að við fáum allt fram um þetta mál sem hefur hvílt eins og mara á þjóðinni?“
Nú má lesa í Kjarnanum: „Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að það sé skynsamlegt að ráðast í sölu á hlut í Íslandsbanka ef það er tengt við það að nota ávinninginn í innviðafjárfestingar.“
Og: Katrín segist leggja áherslu á að söluferlið verði að vera opið og gagnsætt. Það sé ekki ríkisins að ákveða hverjir kaupi ef til dæmis 25 prósent hlutur í bankanum verður seldur í gegnum skráningu á hlutabréfamarkað. „Það skiptir máli að það sé jafnræði á milli þeirra sem hafa áhuga.“