Sigurður Ingi: Ríkisstjórnin tekur peninga frá Íslendingum og færir útlendingum
- þarna birtist munurinn á Framsóknarflokknum og ístöðulausri ríkisstjórn
Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, segir í nýju bréfi sem hann skrifar til flokksfélaga í Framsóknarflokknum, að núverandi ríkisstjórn taki peninga frá Íslendingum og færi útlendingum.
„Það má með sanni segja, að þarna birtist munurinn á Framsóknarflokknum og ístöðulausri ríkisstjórn; við framsóknarmenn sóttum peninga í þrotabúin og færðum Íslendingum, núverandi ríkisstjórn tekur peninga frá Íslendingum og færir útlendingum.