Sigurður Ingi framsóknarforingi fer létt með þetta. Þegar Kristrún Frostadóttir bendir á að peningar til húsnæðisuppbygginga er meira en helmingað, úr 3,7 milljörðum í 1,7 steig Framsóknarforinginn í ræðustól og sló um sig. Sagði vanþekkingu formanns Samfylkingarinnar vera mikla.
Hann sagði ríkisstjórnina hafa tvo milljarða umfram það sem var mögulegt að nýta á þessu ári og tæpa tvo á næsta ári. „Við hyggjumst fá heimild til þess að færa þessa tvo yfir og þannig verði um fjórir milljarðar til stofnframlaga á næsta ári, sem að mati HMS við þær aðstæður sem uppi eru […] dugi á næs ta ári,“ sagði hann.
Nú er bara spurt. Fattaði ráðherrann sjálfur þennan kapal sem kynnti á Alþingi?