„En til þess að geta tekið á þeim stórkostlega vanda sem við glímum við vegna aukinnar umferðar og vegna þess að við höfum ekki sinnt viðhaldi nægjanlega vel í alltof mörg ár, þá höfum við líka verið með til skoðunar hvort að hægt sé að fara í að flýta ákveðnum mikilvægum verkefnum til hliðar með einhvers konar gjaldtöku.“
Þetta er bein tilvitnun í viðtal við samgönguráðherrann, Sigurð Inga Jóhannsson, og er að finna á mbl.is.
Þar segir einnig: „Tvöföldun vega í nágrenni höfuðborgarsvæðisins er að hluta til inni í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir árin 2019-2023. Þetta segir Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitastjórnarráðherra, í samtali við mbl.is.“
Skýrar þarf ekki að tala.
Í viðtali sem hann átti við Lindu Blöndal, í Þjóðbraut á Hringbraut, í desember síðastliðnum sagði hann að vegatollar séu ekki leið sem hann vilji fara í fjármögnun samgönguúrbóta og hafnar þeim hugmyndum sem Jón Gunnarsson, fyrrverandi samgönguráðherra varpaði fram.
Nú hefur hann snúið inn á leið Jóns Gunnarssonar og Sjálfstæðisflokksins.