Sigmundur Davíð Gunnlaugsson skrifar ádrepu í Mogga dagsins. Honum er mikið niðri fyrir. Þar fjallar hann um nánast eina baráttumál Miðflokksins. Greinin hans endar svona:
„Hvort sem fólki líkar það betur eða verr þarf að leiða þessi mál til lykta í komandi kosningum. Þessu verður ekki skotið á frest því áframhaldandi mistök á þessu sviði verða aldrei tekin aftur. 1150 ára saga og öll framtíð þessa litla samfélags er undir.“
Það er bara ekkert annað. Öll saga Íslendinga og öll framtíð Íslendinga er undir. Hann hefur greinilega ekki verið með fótinn á bresmunni þegar hann lét þessi orð falla. Eitt er að hafa áhyggjur en að teikna upp svona öfga er allt annað og meira.