Mannlíf Sýningunum Kjarval – lykilverk og Leiðangur eftir Önnu Líndal á Kjarvalsstöðum lýkur laugardaginn 30. desember.
List Önnu Líndal er marglaga og samsett. Þetta á jafnt við um myndefni hennar, viðfangsefni verka og merkingu þeirra sem hina sjónrænu framsetningu þessara þátta. Í innsetningum hennar má finna jafnt nýjustu tækni í formi myndbanda á tölvuskjáum sem og aldagamla hefð íslenskra hannyrða og undanfarin ár hafa þættir vísindalegra rannsókna og skrásetningar orðið æ fyrirferðarmeiri.
Á sýningu Kjarvals gefst gott tækifæri til að kynnast mörgum lykilverkum frá ferli listamannsins og fá innsýn í þau meginstef sem voru uppistaðan í lífsverki hans. Annars vegar landið í öllum sínum fjölbreytileika og hins vegar það líf og þær táknmyndir sem Kjarval skynjaði í landinu, það sem hugurinn nemur ekki síður en það sem augað sér.
Um áramót verður safnið opið sem hér segir:
Hafnarhús
Opið 31. des. 10.00-14.00
Opið 1. jan. 13.00-17.00
Kjarvalsstaðir
Lokað 31. des. og 1. jan.
Ásmundarsafn
Lokað 31. des. og 1. jan.