Svanur Kristjánsson prófessor skrifaði:
Ég játa fúslega að ég tek meira mark á skoðanakönnunum þegar niðurstöður ríma við mína tilfinningu fyrir stöðu stjórnmálaflokka í landinu. Þessi könnun sýnir að stjórnarflokkarnir þrír eru komnir í bullandi minnihluta en umbótaflokkarnir þrír (Samfylking, Píratar, Viðreisn) eiga raunhæfa möguleika á að mynda ríkisstjórn með þingmeirihluta eftir næstu kosningar.
Ég hygg nefnilega að í hugum margra sé ríkisstjórnin siðferðilega gjaldþrota. Skoðum t.d. ummæli Bjarna Benediktssonar vegna framferðis Samherja í Namibíu:
„… auðvitað er rót vandans í þessu tiltekna máli veikt og spillt stjórnkerfi í landinu. Það virðist vera einhvers konar rót alls þessa sem við erum að sjá flett ofan af.“
Enginn í forystu stjórnarflokkanna hefur mótmælt þessum málflutningi formanns Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra landsins. Þjónkun ríkisstjórnarinnar viðútgerðarauðvaldið á sér engin takmörk. Það skynjar vaxandi fjöldi fólks.Siðferðilega er ríkisstjórnin gjaldþrota.Burt með ríkisstjórn útgerðarauðvaldsins.