Helga Vala Helgadóttir, formaður velferðarnefndar, skrifaði:
Mér finnst mjög alvarlegt mál að heilbrigðisráðherra segi það
„áskorun að standa með Landspítala“ þegar starfsfólk spítalans, læknar,
hjúkrunarfræðingar og aðrir lýsa raunveruleikanum innan spítalans. Mér finnst
mjög alvarlegt að heilbrigðisráðherra með þessum orðum sínum láti eins og
þjóðarsjúkrahúsið sé eitthvað gæluverkefni lækna? Ástandinu hefur verið lýst
sem hættuástandi og starfsfólkið sinnir störfum sínum langt umfram bestu getu
að mínu mati. Það að hún leyfi sér að hóta starfsfólkinu með þessum hætti
veldur mér gríðarlegum vonbrigðum og ég óttast það að ríkisstjórnin ætli sér
ekki að bregðast við því neyðarástandi sem er þarna.
„Við erum bara einu rútuslysi frá algjörri katastrófu,“ var
sagt í mín eyru af starfsmanni spítalans í morgun. Ég trúi þeim, enda hef ég
orðið vitni að þessu af eigin raun.