„Þessi niðurstaða hlýtur að vera mikið reiðarslag fyrir forystu Eflingar, þriðji hver greiðir atkvæði gegn verkfallsboðun og aðeins 189 af 287 taka afstöðu. 124 styðja forystu Eflingar í þessari ófriðarför. Ekki síst í ljósi þess yfirgengilega þrýstings sem þetta fólk var beitt af hálfu forystu Eflingar, sem það hefur sjálft skýrt frá.“
Þetta segir Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, í samtali við mbl.is, eftir að ljóst var að hópur starfsmanna sem starfar undir kjarasamningi Eflingar og SA á Íslandshótelum samþykkti að leggja niður störf á þriðjudaginn í næstu viku.
„Blað er brotið með þessari nálgun Sólveigar Önnu Jónsdóttur að kjósa alltaf ófriðinn þótt friður sé í boði og njóti fjöldafylgis.“
Augljóslegt er að samstaða láglaunafólks er ekki fagnaðarefni í Borgartúni 35. Það hefur alltaf verið ljóst. Verkafólkið hefur engar áhyggjur þó myndist skeifa á andliti Halldórs Benjamíns. Vitnum meira HBÞ:
„Þetta eru í staðinn um 124 manns sem eru að taka ákvörðun sem hefur áhrif á 21 þúsund Eflingarfélaga og á samfélagið allt. Á sama tíma berst forystan með kjafti og klóm gegn því að Eflingarfélagar fái að kjósa um samninginn sem er á borðinu. Mitt mat er að Sólveig Anna ætlaði sér aldrei að semja og nálgaðist samningagerðina aldrei með það í huga að ná sátt. Skrumskæling þeirra á vinnulöggjöfinni og framkoma staðfesta að þau hirða hvorki um lög, starfsheiður starfsfólks ríkissáttasemjara né almenna sómakennd – og mér misbauð að horfa á Sólveigu Önnu fagna verkfallsboðun í beinni útsendingu RÚV.“
Já, að hún hafi glaðst yfir að félagar hennar standi með forystunni og sýni kjark til að berjast til mannssæmandi launa. Samningurinn á borðinu dugði ekki, að mati Eflingar, til að gera kjör fólksins mannsæmandi. Einfaldara getur það ekki verið.
„Að því sögðu að þá erum við fyrst og fremst með miklar áhyggjur af því tjóni sem af þessari óvissuför muni hljótast, bæði fyrir ferðaþjónustuna og atvinnulífið en ekki síður félagsfólk Eflingar, sem að miklum meirihluta hefur ekkert haft um þessa verkfallsboðun að segja. Við spyrjum að leikslokum. Það hefur reynst okkur vel.“
Spyrjum að leikslokum, segir Halldór Benjamín. Ætli Sólveig Anna taki ekki bara ekki undir þetta.