Leiðari Moggans er um innanbúðarfund sem Bjarni Benediktsson mætti til. Niðurstaðan er eins og við mátti búast. Það versta sem fólkið á lægstiu laununum gæti orðið fyrir er að fá launahækkun. Þeir eru samir við sig. Skiptum yfir í Moggann,
„Þótt sú staða, sem Bjarni lýsti á fundinum, beri því vitni að hér sé staðan allt önnur og betri en annarst staðar í Evrópu þýðir það ekki að hér sé allt í himnalagi. Undanfarin misseri hefur kaupmáttur aukist verulega hér á landi. Þótt verðbólgan hafi tekið við sér hefur sú styrking ekki horfið, en það þarf að halda vel á spöðunum eigi sá árangur ekki að fara í súginn.
Hækkun dollarans gagnvart krónunni veldur því að það verður ódýrara fyrir Bandaríkjamenn að koma hingað, en hún veldur því að hér verður margt dýrara en áður. Nú standa yfir mikilvægir kjarasamningar. Markmiðið með þeim hlýtur fyrst og fremst að vera að glata ekki ávinningnum af kjarabótunum, sem hafa náðst. Það er ekki síst hagur þeirra, sem eiga erfiðast með að ná endum saman og mega við minnstu áföllunum. Þessi staðreynd týnist hins vegar iðulega í óbilgjarnri umræðu, sem einkennist af hrópum, köllum og offorsi. Og taki þeir til sín sem eiga.“
Þessir gæjar. Grunur er um að þeir trúi eigin orðum.