- Advertisement -

Seðlabankastjóri var með „uppistand“ á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga

Vilhjálmur Birgisson skrifaði:

Ég skal fúslega viðurkenna að ég er alveg ónæmur fyrir gagnrýni frá seðlabankastjóra enda virðist honum vera einstaklega í nöp við vinnandi stéttir.

Efnahagsmál Á síðasta fimmtudag var seðlabankastjóri með uppistand á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga og eins og svo oft áður þá gat hann ekki setið á sér með að hnjóða í verkalýðshreyfinguna.

Ég skal fúslega viðurkenna að ég er alveg ónæmur fyrir gagnrýni frá seðlabankastjóra enda virðist honum vera einstaklega í nöp við vinnandi stéttir þessa lands sem hafa gegnum marga áratugi þurft að búa við okurvexti fjármálakerfisins.

Það sem mér fannst afar undarlegt er að á sama tíma og seðlabankastjóri var að gagnrýna verkalýðshreyfinguna fyrir „of miklar“ launahækkanir sátu 500 fulltrúar sveitarfélaganna beint fyrir framan hann en sveitarfélögin bera stóra ábyrgð á 49% af verðbólgunni sem nú ríkir á Íslandi. Ef skoðað er 10 ár aftur í tímann eru 42% af verðbólgunni knúin áfram vegna hækkunar á húsnæðisliðnum.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Seðlabankastjóri hefði einnig getað „tekið í gegn“ bæjarstjóra Kópavogs.

En öll vitum við að hækkun á fasteignaverði hefur verið einn helsti drifkraftur þess að húsnæðisliðurinn hefur hækkað þetta mikið.

Allir vita líka að sá framboðsskortur á lóðum sem sveitarfélögin bera ábyrgð á hefur keyrt upp fasteignaverð og núna er verðbólga á Íslandi 5,4% en án húsnæðisliðar einungis 2,8% eða eins og áður sagði 49% af verðbólgunni eru vegna húsnæðisliðarins sem er á ábyrgð sveitarfélaganna.

Nei, hann nefndi þetta vart en var með „brandara“ um launahækkanir og það þrátt fyrir að eini aðilinn í íslensku samfélagi sem hefur verið tilbúinn að leggja eitthvað á sig til að ná niður verðbólgu sé verkalýðshreyfingin með því að gera langtíma kjarasamninga með hófstilltum launahækkunum.

Já, þetta var uppistand hjá seðlabankastjóra sem Ari Eldjárn hefði verið stoltur af enda var seðlabankastjóri með „salinn“ með sér og þarna voru 500 viðhlæjendur en það sorglega í þessu öllu saman var að hann hefði klárlega átt að beina spjótum sínum að sveitarstjórnarfólkinu sem ber ábyrgð á því að lóðaverð (heimilisskattur) hefur hækkað úr 4% af byggingarkostnaði í tæp 21% sem síðan hefur keyrt verðbólguna upp eins og áður sagði.

Seðlabankastjóri hefði einnig getað „tekið í gegn“ bæjarstjóra Kópavogs fyrir að hafa keyrt í gegn nýja aðferðafræði í skattpíningu á íbúa Kópavogs en það lýtur að því að hækka gjaldskrár ársfjórðungslega og tengja sumar þeirra við launavísitölu sem er algjörlega galið og mun geta haft alvarlegar afleiðingar í för með sér af önnur sveitarfélög apa þessa glórulausu aðferðafræði eftir Kópavogi.

Málflutningur seðlabankastjóra er ekki trúverðugur.

Hann hefði einnig getað gagnrýnt Orkuveitu Reykjavíkur fyrir að hafa hækkað rafmagn með flutningskostnaði um tæp 27% frá áramótum. En rök OR eru aukinn viðhaldskostnaður og nýframkvæmdir en rétt er að geta þess að Orkuveitan greiddi 6 milljarða í arðgreiðslur til eigenda sinna og tók Reykjavíkurborg 93,4% af hagnaði OR til sín í formi arðgreiðslna.

Nei, seðlabankastjóri segir ekkert yfir því að Reykjavíkurborg og hinir eigendur Orkuveitunnar taki til sín 94% af hagnaði OR sem segist síðan þurfa að hækka hjá sér gjaldskrár til að standa undir auknu viðhaldi og nýframkvæmdum. Allt þetta hefur síðan áhrif á hækkun á vísitölunni.

Magnað að seðlabankastjóri hafði svo sannarlega kjörið tækifæri til að skjóta föstum skotum á sveitarstjórnir hvað varðar lóðaverð, gjaldskrárhækkanir og að taka 94% af hagnaði til sín í formi arðgreiðslna en hann kaus frekar að vera með uppistand um launahækkanir hinna vinnandi stétta.

Málflutningur seðlabankastjóra er ekki trúverðugur enda nefnir hann ekkert hvaða áhrif okurvextir hafa á fjármagnskostnað fyrirtækja en 2% hækkun á vöxtum kosta fyrirtækin 68 milljarða sem er álíka mikið og kjarasamningar á hinum almenna vinnumarkaði kostuðu!


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: