Sauðsvarti íslenski almúgi og krónuundrið
Úlfar Hauksson skrifaði:
„Ávöxtun bankareikninga batnar verulega á milli ára þótt enn sé rauði liturinn áberandi varðandi raunávöxtun. Það segir þó ekki alla söguna því rauðu tölurnar eru allt aðrar og hagstæðari en áður – og flestar rétt undir núllinu í stað þess að vera á bilinu -4% til -8%.“
Þessi tilvitnun segir ansi margt um íslenska krónuundrið og hvernig hinn sauðsvarti íslenski almúgi nærir auðmagnið með tilfærslu á fjármagni og völdum. Góðu fréttirnar eru sem sagt þær að það er aðeins minna tap á sparifé almennings…. en jú vissulega tap! Við eigum auðvitað heimsmet í vaxtamun út og innlána…. þökk sé krónunni!