Andrés Magnússon, á Mogganum, er gamalreyndur blaðamaður og beitti gamaldagsvinnubrögðum í blaðamennsku. Hann fór úr húsi og var á vappi í grennd við þinghúsið. Á vappinu komst Andrés að því „reyndir stjórnarandstöðuþingmenn“, sem eru ekki margir, vilja ekki að gera andstaðan geri sér mat úr framferði Þórdísar Kolbrúnar R. Gylfadóttur. Merkilegt, ef rétt er.
Andrés skrifar: „Á vappinu í kringum þinghúsið mátti hitta einn og einn, sem taldi að stjórnarandstaðan ætti að gera sér mat úr nýlegum vandræðum Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur á félagsmiðlum. Reyndir stjórnarandstöðuþingmenn eyða slíku tali. „Það er óheppilegt, jafnvel skammarlegt, að ráðherrar gangi ekki á undan með góðu fordæmi, en það er ekki stóra vandamálið, sem þingið þarf að taka á.““