Aðalfundur samtaka leigjenda, sem haldinn var 30. október,
skorar á alla leigjendur til að ganga til liðs við samtökin og taka þátt í
löngu tímabærri hagsmunabaráttu leigjenda og þeirra sem ekki komast inn á
íbúðamarkaðinn. Staða leigjenda er of veik, réttindi þeirra lítil og
húsnæðiskostnaður of hár. Stjórnvöld uppfylla ekki lagaskyldu sína gagnvart
leigjendum og réttindi og efnahagsleg staða leigjenda á Íslandi er miklum mun
lakari en í næstu nágrannalöndum. Aðeins leigjendur sjálfir geta breytt þessari
stöðu. Aðalfundur Samtaka leigjenda hvetur því alla leigjendur til að ganga til
liðs við samtökin og allt réttsýnt fólk til að gera það sama, til stuðnings
leigjendum og hagsmunabaráttu þeirra. Hægt er að ganga í samtökin á vefslóðinni
leigjendasamtokin.is
Aðalfundurinn fól nýkjörinni stjórn samtakanna að undirbúa leigjendaþing í
febrúar/mars á næsta ári og leggja fyrir það frumvarp að laga- og
skipulagsbreytingum til að styrkja samtökin og efla starf þeirra í þágu
leigjenda á næstu misserum. Sérstaklega skal horft til deilda eða sjálfstæðra
félaga í landshlutum og meðal leigjenda tiltekinna leigufélaga.
Aðalfundurinn fól stjórninni að fjölga félögum og tengja sem flesta þeirra inn
í starf samtakanna. Fundurinn fól stjórninni að leggja fram fyrir leigjendaþing
frumvarp að kröfugerð samtakanna sem fela þarf í sér gagngera breytingu á
leigumarkaðinum, svo hann þjóni leigjendum en misnoti þá ekki. Aðalfundurinn
fól nýrri stjórn að leita til verkalýðsfélaga og annarra almannasamtaka um
fjárhagslegan stuðning til að tryggja starfsemi Samtaka leigjenda. Þá fól
aðalfundurinn nýrri stjórn að efna til umræðu um stöðu leigjenda,
húsnæðismarkaðinn almennt, samanburð við önnur lönd og hvað gera megi hérlendis
til að bæta kjör og réttindi leigjenda.
Eftirtalið fólk var kjörin í stjórn og varastjórn samtakanna: Anita Da Silva
Bjarnadóttir, Guðmundur Hrafn Arngrímsson, Guðrún Vilhjálmsdóttir, Gunnar Smári
Egilsson, Haraldur Ingi Haraldsson, Laufey Líndal Ólafsdóttir, Rán Reynisdóttir,
Vilborg Bjarkadóttir, Yngvi Ómar Sighvatsson og Þórdís Bjarnleifsdóttir.