Samráð til að halda uppi íbúðarverði
- fasteignasalar og bankar hafa haft samráð til að halda uppi íbúðarverði.
Áður hefur íbúðarverð verið hátt. Svo var á árinu 2010. Þá áttu bankar, þar meðtalin Íbúðalánasjóður, býsn eigna. Bankarnir og
fasteignasalar höfðu samráð til að halda uppi verði.
„Bankarnir verða að tryggja sína hagsmuni sem fara saman við aðra á þessum markaði; að tryggja sölu eigna á sem bestu verði. Þetta verður gert
faglega með því að mjatla þessum eignum smátt og smátt inn á markaðinn,“ sagði Grétar Jónasson, framkvæmdastjóri Félags fasteignasala, í viðtali við Fréttablaðið í september 2010.
Nú þarf að spyrja hvort svipað sé að gerast nú. Hvort eigendur margra eigna og fasteignasalar hafi með sér samráð til að halda uppi, og jafnvel hækka, verð á fasteignum. Það sem hefur áður verið gert, og skilað miklu til þeirra sem því beittu, er hugsanlega notað aftur.
Með fylgja tvær myndir af fréttum úr Fréttablaðinu þar sem eru fréttir um þetta.