Samherjafólki tókst ekki að koma í veg fyrir að Njáll Trausti Friðbertsson yrði oddviti flokksins í Norðaustri. Heimakjördæmi Samherja.
„Við finnum sterkan meðbyr með Sjálfstæðisflokknum í kjördæminu. Hann nýtist okkur best í samstöðu,“ segir sigurreifur Njáll Trausti. Það er ekki nóg að Njáll Trausti hafi lagt skæruliðadeild Samherja að velli, heldur mun hann gera tilkall til ráðherraembættis haldi Samherjastjórnin velli eftir kosningar. Þá verður staða flokksins snúin í kjördæmi Samherja.
Hann tekur nú við hlutverki Kristjáns Þórs Júlíussonar sem oddviti flokksins í kjördæminu.
Njáll Trausti fékk 816 atkvæði í fyrsta sætið af þeim 1.570 sem greidd voru. Berglind Ósk Guðmundsdóttir varð í öðru sæti listans, sem hún hafði sóst eftir. Hún hlaut 708 atkvæði samanlagt í fyrsta og annað sæti.
Gauti Jóhannesson, sem sóttist eftir fyrsta sætinu, hafnaði í því þriðja með 780 atkvæði samanlagt í fyrsta til þriðja sæti.
Berglind Ósk er varabæjarfulltrúi á Akureyri og því mun Sjálfstæðisflokkurinn stilla upp tveimur Akureyringum í fyrstu sætin, rétt eins og Samfylkingin gerir.