- Advertisement -

Samfylkingin: Lýðræðishreyfing iðkar ritskoðun og pólitískar hreinsanir

Birgir Dýrfjörð skrifar:

„Ég fyrirlít skoðanir þínar, en ég er reiðubúinn að fórna lífi mínu fyrir rétt þinn til að tjá þær.“

Þessi orð eru höfð eftir  Voltaire.  Lýðræðissinnar um allan heim taka þau oft sér í munn,  þegar þeir vilja sanna trúnað sinn og heilindi við lýðræði, og frelsi allra manna til að tjá skoðanir sínar.

Meðal frjálsra þjóða er frelsið til að tjá hugsanir sínar undirstaða alls lýðræðis. Án þess frelsis er ekkert lýðræði.  Lýðræði er heilagur réttur og skal öllum þegnum jafn.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Hugsanalöggur í Samfylkingu.

Að hefta tjáningafrelsi einstaklinga er mikill glæpur og svívirða gegn sjálfsvirðingu og frelsi hverrar manneskju. Það var því skelfileg árás á  heilög grunngildi lýðræðisjafnaðarmanna þegar sjö manna stjórn Samfylkingarinnar, formaður meðtalinn, (öll fullorðið fólk)   gaf út sameiginlega yfirlýsingu um ritskoðun á lokuðum innri samskiptavef  (facebook) Samfylkingarinnar.

 Yfirlýsing stjórnarinnar var kynnt undir eftirfarandi fyrirsögn.

„Hér fer á eftir yfirlýsing frá stjórn Samfylkingarinnar“. Þar segir:  

„Þess vegna hefur verið ákveðið að setja hópnum (facebook) eftirfarandi reglur.

„1. Upphafsinnlegg þarf samþykki stjórnenda áður en það birtist“

 Sem sagt, ef flokksfélagi vill skrifa á vefinn um málefni, sem  varða flokkinn, þá fær hann ekki þau skrif sín birt fyrr en stjórnendur  „hugsanalöggur“ eru búnir að yfirfara þau og samþykkja.

 Ég endurtek:  Félagsmaður fær ekki skoðanir sínar birtar fyrr en hugsanalöggur flokksins eru búnar ritskoða þær og samþykkja. (Ath. Hér er átt við stjórn vefsíðunnar)

Ég þekki það vel til stjórnar Samfylkingarinnar, að ég trúi ekki, að öllum í stjórninni hafi verið ljóst hvað stóð í þessum texta, áður en hann var birtur í þeirra nafni.

En komi engin skýring á aðkomu stjórnar flokksins að tilurð textans. Þá ber hún alla ábyrgð á þeim smánarbletti, sem þessi ritskoðun er á flokki lýðræðisjafnaðarmanna.  –  Já lýðræðis.

 Tylftardómur hinn nýji

Stjórnendur (hugsanalöggur) síðunnar eru 6 úr hópi starfsmanna og 6 úr framkvæmdarstjórn.

Á tímum nornaveiða gat norn svarið af sér sök ef tólf sóru með henni sakleysi. Það var tylftareiður.      

Þegar tylftardómur Samfylkingarinnar, eða útvaldir í hans umboði sverja með höfundi, að honum gangi ekkert  ósæmilegt til þá má birta upphafsinnlegg hans á facebook flokksins,  – annars ekki..

Undir hylmingu auðmýktar, úlfur glefsandi fólginn var

Þannig orti Halldór á Helgafelli í saltara sínum. Ritskoðun Samfylkingarinnar  er hulin undir þeirri hylmingu að henni sé ætlað að bæta orðræðu flokksmanna þannig, að hún verði settleg og kurteis um menn og málefni. Þannig á Samfylkingarfólk að tala og skrifa.

Að ritskoða  innri samskiptavef í stjórnmálaflokki, sem kennir sig við lýðræði, er galin hugmynd. Það er eins og fundarstjóri gefi ekki ræðumanni orðið nema hann upplýsi fyrst kvað hann ætlar að segja.

Enda var ritskoðun þessi alls ekki sett á til að bjarga sóma flokksmanna og forða þeim frá að nota óvandað orðbragð um andstæðinga.

Hún var sett til, að hægt væri stöðva vaxandi gagnrýni flokksfólks á forustu flokksins.

Orsök ritskoðunar

Orsök þessarar ritskoðunar má einfaldlega rekja  til þess, að uppstillingarnefnd í „Kraganum“ vék Guðmundi Andra Thorssyni,  traustum og vinsælum þingmanni  úr öruggu þingsæti.  Setti svo í hans stað Þórunni Sveinbjarnardóttur.

Ósáttur flokksmaður gerði athugasemd við það að Guðmundi Andra var vikið úr þingsæti.

Formanni framkvæmdastjórnar mislíkaði athugasemdin og fjarlægði hana, að eigin geðþótta.

Það inngrip formannsins að fjarlægja undirritaða færslu af lokaðri síðu var  valdbeiting og ritskoðun, sem olli óvægnum deilum innan flokksins.  

Æðsta stjórn Samfylkingarinnar, sem öll er fullorðið fólk, lýsti stuðningi við formann framkvæmdastjórnarinnar og birti tilkynningu um ritskoðun á heimavef flokksins.

Hingað til hafa flokksmenn haft þar frelsi til að skiptast á skoðunum. Hver með sínu nefi.

 Galnar hugmyndir

 Það er ekkert til að hneykslast yfir, að fólki finnist galnar hugmyndir sínar vera réttar.

Það er líka erfitt að álasa fólki fyrir að framkvæma það, sem það telur vera rétt, – þó galið sé.

 Það er aftur á móti mjög alvarlegt  þegar  fólk með galnar hugmyndir tekur sér boðvald í stjórnmálaflokki og beitir því valdi.  Sjálfu sér og flokknum til skaða og skammar

Pólitískar hreinsanir

Ég trúi, að hugmyndir þeirra, sem vilja ritskoða flokksfélaga sína, eigi pólitískar ættir í sömu kimum flokksins, og þau fjögur, í stjórn fulltrúaráðsins, sem yfirtóku um stund lýðræðið af flokknum, til að framkvæma pólitískar hreinsanir á  framboðslistum hans í Reykjavík.

Þau hreinsuðu af lista flokksins í Rvk.-Suður, Ágúst Ólaf, Jóhönnu Vigdísi og Einar Kárason.

Þó höfðu þau í höndum sér Gallup-könnun, sem sýndi að flokkurinn mældist þá stærstur flokka í því kjördæmi, og að auki hafði hann langmest fylgi meðal ungra kjósenda í kjördæminu.

Afglöp  „fjórmenninga-klíkunnar“

Þeim fjórum, í stjórn fulltrúaráðsins í Rvk., sem ákváðu þessar hreinsanir  ber skylda að gera flokksfólki grein fyrir hvaða nauðir ráku þau til þessara óskiljanlegu og dýrkeyptu afglapa.

Takmörkuð auðlind

Formaður fulltrúaráðsins, Hörður Oddfríðarson hefur þá skyldu að svara flokknum. 

Svar hans í sjónvarpi að „efstu sæti á lista Samfylkingarinnar eru takmörkuð auðlind.“

Það sæmir ekki. Honum ber að gera betur.  Hann stýrði sjálfur verkinu.

                        Birgir Dýrfjörð.  (Höf. er í flokksstjórn Samfylkingarinnar)


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: